Gistimiðar

Gjafabréf

Íslandshótel - Gjafabréf

Verkalýðsfélagið hefur hafið sölu á gjafabréfum hjá Íslandshótelum á 15.000 kr.

Inneign er að verðmæti 25.000 kr. og gildir í fjögur ár frá útgáfu gjafabréfs til félagsins.

*einn punktur er dreginn frá við kaup á hverju gjafabréfi.

Gjafabréf á Íslandshótelum gildir á öllum hótelum og veitingastöðum Íslandshótela um allt land.

Bókanir í gistingu fara fram á www.islandshotel.is og númer gjafabréfs notað við bókun.

Bókanir á veitingastaði Íslandshótela fara fram á www.noona.is eða í gegnum netfang veitingastaðarins.

Gjafabréfið er afhent á skrifstofu félagsins, einnig er hægt að óska eftir að fá það sent í tölvupósti.

Miðað er við að hver félagsmaður geti keypt fimm gjafabréf á ári og eru einungis ætlað til notkunar fyrir félagsmenn sjálfa. Að auki dregst frá einn punktur.

* Ath. við hvetjum félagsmenn til að kynna sér skilmála Íslandshótela.*

Nánari upplýsingar um hótel og veitingastaði Íslandshótela.

 

Hægt er að kaupa gjafabréfin á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness á Þjóðbraut 1 eða með því að hafa samband við skrifstofu í tölvupósti eða síma.

Image
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.