Hraunborgir

Húsasund 16, Hraunborgum

Í Hraunborgum á félagið 41 m2 A-bústað með tveimur svefnherbergjum uppi á lofti. Í öðru herberginu eru tvö 80 cm rúm en í hinu eru tvö 90cm rúm. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. 

Í kringum bústaðinn er góður pallur með heitum potti, gasgrilli og garðhúsgögnum.

Farið var í verulega uppfærslu á húsinu snemma árs 2021, bústaður málaður að utan og innan, skipt um gólfefni, rúm endurnýjuð og fleira.

Þjónustumiðstöðin í Hraunborgum er opin yfir sumartímann eins og tjaldstæðið. Þar er einnig sundlaug, minigolf og fleira sem opið er yfir sumartímann.

Lyklar eru afhentir á skrifstofu félagsins, Þjóðbraut 1, ásamt tuskum og gólfmoppu. Gestir þurfa sjálfir að fara með rúmföt, handklæði, diskaþurrkur og salernispappír.

Þetta er lokað svæði, þannig að gestir þurfa að nálgast síma á skrifstofunni hjá okkur áður en farið er af stað.

Hægt er að sjá fleiri myndir hér.

Leiðin að Hraunborgum

Búnaður

Sími, sem gengur að læstu hliði, afhendist á skrifstofu fyrir upphaf leigutímabils.

Sjónvarp

 √  Ísskápur m.     frystihólfi  √
 Gasgrill  √  Uppþvottavél  √
 Kaffivél  √  Helluborð og ofn  √
 Brauðrist  √  Barnastóll  √
 Örbylgjuofn  √  Þvottavél  ×
 Vöfflujárn  √  Þurrkari  ×
 Pönnukökupanna  √  Heitur pottur  √
 Samlokugrill  √

 Borðbúnaður f. amk.    6 manns

 Handþeytari  √

Svefnaðstaða

                       Svefnherbergi eru á efri hæð                          

 Sængur og     koddar

6

 Rúm

4

 Stærð á rúmum
80x200
80x200
180x200 (2x90)
 Barnaferðarúm √
 Auka dýnur

2

 Svefnloft Ath. svefnherbergi eru á efri hæð

Annað

Tuskur og gólfmoppur til þrifa, afhendist á skrifstofu fyrir upphaf leigutímabils.

Uppþvottalögur

 √ 

Töflur í uppþvottavél

 √

Ræstiefni

 √

Handsápa

 ×

Salernispappír

 ×

Handklæði

 ×

Borðtuskur

 ×

Viskustykki

 ×

Þvottaefni

 ×
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.