Stéttarfélögin VLFA, FIT, Sameyki, VR, Kennarasamband íslands og Sjúkraliðafélag Íslands standa saman að hátíðardagskrá :
Þann 1. maí kl. 14:00 verður safnast saman við skrifstofu VLFA að Þjóðbraut 1, þar sem hin frábæra trommusveit TOSKA undir stjórn Heiðrúnar Hámundsdóttur mun leiða kröfugöngu .
Gengið verður hringur sem endar við Bæjarskrifstofur Akraness, þar munum við fagna saman í sal eldri borgara á Akranesi.
Boðið verður upp á veitingar ásamt söngatriðum og ræðuhöldum.
Félögin bjóða upp á tvær sýningar á myndinni Super Mario Bros, fyrri kl 13:00 og seinni kl. 16:00
