1. maí 2025
Verkalýðsfélag Akraness, VR, FIT, Kennarasamband Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands og Sameyki standa fyrir dagskrá á baráttudegi verkalýðsins 1. maí á Akranesi.
Klukkan 14:00 fer af stað kröfuganga frá Þjóðbraut 1, trommusveit TOSKA undir stjórn Heiðrúnar Hámundar leiðir gönguna.
Hátíðar- og baráttufundur í sal eldri borgara, Dalbraut 4, að göngu lokinni.
Hátíðarræðu flytur Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA og kvennakórinn Ymur flytur nokkur lög.
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á kaffi og kökur að hætti kórfélaga.
Allir velkomnir
Kl. 13 og kl. 16 verður bíó fyrir börn í Bíóhöllinni - Hundmann með islensku tali ath. númeruð sæti.
Miða má nálgast á midix.is
https://www.midix.is/is/hundmann-kl-1600-01-may-2025/eid/648/group/1
