Hátíðahöld á Akranesi vegna 1. maí verða með hefðbundnum hætti.
Safnast verður saman við Kirkjubraut 40 klukkan 14:00 í kröfugöngu og genginn hringur á neðri-Skaga í takt við lúðra og áslátt Skólahljómsveitar Akraness. Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3ju hæð Kirkjubrautar 40. Fundarstjóri er Vilhjálmur Birgisson og mun hann flytja ávarp. Ræðumaður dagsins er Stefán Skafti Steinólfsson, verkamaður. Grundartangakórinn mun syngja fyrir gesti og boðið verður upp á veglegt kaffihlaðborð. Eins og undanfarin ár býður 1. maí nefndin börnum frítt í bíó í Bíóhöllinni kl. 15:00.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta og taka þátt í dagskránni.
