Hátt í 100 manns lögðu leið sína á skrifstofu félagsins í gær í tilefni af 90 ára afmæli félagsins, en með opnu húsi á skrifstofunni lauk formlegum hátíðarhöldum vegna afmælisins. Boðið var upp á kaffi og léttar veitingar, hægt var að ganga um húsið og skoða aðstöðuna og var setið hringinn í kringum öll skrifborð hússins.
Á þessum tímamótum bárust félaginu margar góðar kveðjur og vill stjórn og starfsfólk félagsins þakka innilega fyrir auðsýndan stuðning og hlýhug.
