Aðalstjórn Verkalýðsfélags Akraness minnir félagsmenn Almennrar deildar félagsins á aðalfund deildarinnar í kvöld. Hefst hann klukkan 18:00 og er í fundarsal félagsins að Sunnubraut 13.
Á morgun þriðjudag er aðalfundur Iðnsveinadeildar og á miðvikudaginn verður síðan aðalfundur Matvæladeildar. Hefjast þeir fundir einnig kl. 18:00 í fundarsal félagsins að Sunnubraut 13.
Dagskrá aðalfundanna er svohljóðandi:
1. Venjubundin aðalfundarstörf
2. Farið yfir stöðu kjarasamninga
3. Önnur mál
