Í gærkvöldi var haldinn aðalfundur Stóriðjudeildar Verkalýðsfélags Akraness og hafa aðalfundir allra deilda þá verið haldnir. Engar mannabreytingar urðu í stjórn Stóriðjudeildar.
Á aðalfundi Opinberrar deildar VLFA sem haldinn var í fyrrakvöld var Ragnhildur Bjarnadóttir kosin ný inn í stjórn deildarinnar í stað Sigurlaugar Guðmundsdóttur. Sigurlaugu eru færðar bestu þakkir fyrir störf sín í félaginu.
Engar mannabreytingar urðu í stjórnum Almennrar deildar og Matvæladeildar.
