Eins og lög félagsins gera ráð fyrir verða aðalfundir allra deilda Verkalýðsfélags Akraness haldnir næstu daga. Nú í kvöld munu félagsmenn Almennrar deildar funda. Félagsmenn Iðnsveinadeildar munu funda annað kvöld og á miðvikudagskvöld 3. febrúar er aðalfundur Matvæladeildar. Stóriðjudeildin mun funda mánudaginn 8. febrúar og Opinbera deildin fundar síðust þann 9. febrúar. Allir fundirnir verða haldnir í fundarsal félagsins að Sunnubraut 13 og hefjast kl. 18:00.
Dagskrá fundanna:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Kynning á stöðu kjaramála
- Önnur mál
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta á fund sinnar deildar og taka þannig þátt í mótun starfsemi félagsins. Kaffiveitingar verða í boði.
