Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness verður haldinn miðvikudaginn 26. maí kl. 17:00 á Gamla Kaupfélaginu, Kirkjubraut 11
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.
- Kosningar sem þurfa að fara fram á aðalfundi samkvæmt 28. grein laga félagsins.
- Önnur mál.
Á aðalfundi verða ekki afgreiddar með atkvæðagreiðslu aðrar tillögur og ályktanir en þær sem borist hafa til skrifstofu félagsins 5 dögum fyrir aðalfund eins og 28. grein laga félagsins kveður á um. Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir aðalfund. Komi tillögur eða ályktanir fram þá munu þær liggja frammi á skrifstofu félagsins og verða einnig kynntar á heimasíðu félagsins.
Rétt er að vekja athygli á aðalfundurinn verður haldinn með þeim skilyrðum og takmörkunum sem sóttvarnaryfirvöld kveða á um þegar fundurinn verður haldinn.
Boðið verður upp á kvöldverð eftir fundinn.
