Aðalfundur sjómannadeildar hefst á morgun kl. 14:00. Fundurinn verður haldinn á sal félagsins að Kirkjubraut 40, 3. hæð.
Dagskrá fundarins er:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Hólmgeir Jónsson og Sævar Gunnarsson kynna nýgerðan kjarasamning sjómanna.
3. Kosning um kjarasamning sjómanna.
4. Önnur mál.
Sjómenn eru eindregið hvattir til að mæta.
