Á morgun verður aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness haldinn. Fundur verður settur kl. 13:00 í matsal Sementsverksmiðjunnar, Mánabraut (Fortuna).
Dagskrá fundarins er á þessa leið:
1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu
3. Kosningar sem þurfa að fara fram samkvæmt 28. grein
4. Ákvörðun félagsgjalda
5. Önnur mál
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta og láta málefni síns stéttarfélags sig varða.
Eftir fundinn verður boðið upp á veglegar veitingar úr eldhúsi Fortuna.
