Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness verður haldinn miðvikudaginn 18. maí kl. 17:00 á Gamla Kaupfélaginu, Kirkjubraut 11
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.
- Kosningar sem þurfa að fara fram á aðalfundi samkvæmt 28. grein laga félagsins
- Lagabreytingar á greinum. 9, 14,21,22, 29 og 36
- Önnur mál.
Á aðalfundi verða ekki afgreiddar með atkvæðagreiðslu aðrar tillögur og ályktanir en þær sem borist hafa til skrifstofu félagsins 5 dögum fyrir aðalfund eins og 28. grein laga félagsins kveður á um. Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir aðalfund. Komi tillögur eða ályktanir fram þá munu þær liggja frammi á skrifstofu félagsins og verða einnig kynntar á heimasíðu félagsins.
Boðið verður upp á kvöldverð eftir fundinn.
