Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness verður haldinn
þriðjudaginn 23. apríl 2024 kl. 17:00 á Nítjándu (Golfskálanum)
Dagskrá:
- 1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
- 2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.
- 3. Kosningar sem þurfa að fara fram á aðalfundi samkvæmt 28. grein laga félagsins.
- 4. Heiðrun fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.
- 5. Önnur mál.
Á aðalfundi verða ekki afgreiddar með atkvæðagreiðslu aðrar tillögur og ályktanir en þær sem borist hafa til skrifstofu félagsins 5 dögum fyrir aðalfund eins og 28. grein laga félagsins kveður á um.
Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofu félagsins 10 dögum fyrir aðalfund. Komi tillögur eða ályktanir fram þá munu þær liggja frammi á skrifstofu félagsins og verða einnig kynntar á heimasíðu félagsins, vlfa.is.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta.
Boðið verður upp á kvöldverð eftir fundinn.
