Áframhaldandi starfsemi einingaverksmiðju Smellinn á Akranesi hefur nú verið tryggð með yfirtöku Arion banka á rekstri verksmiðjunnar.
Fyrir helgi var öllum starfsmönnum var sagt upp störfum, um 20 talsins. Nú hafa 15 starfsmenn verið endurráðnir, þannig að 5 manns misstu vinnuna við yfirtökuna. Samkvæmt þeim upplýsingum sem félagið hefur aflað sér þá hafa þeir 15 sem eftir eru þurft að taka á sig einhvers konar launaskerðingu.
Félagið á eftir að yfirfara þá ráðningasamninga sem starfsmenn hafa gert við hinn nýja eiganda.
