Hafir þú náð 25 ára aldri og starfað við einhverja iðn í 5 ár, þá getur raunfærnimat verið eitthvað fyrir þig og jafnvel stytt skólagöngu þína til muna. Næstkomandi mánudag kl. 17.30 verður haldinn kynningarfundur um raunfærnimat í húsakynnum Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands á Akranesi. Fundurinn er öllum opinn og vonast er eftir þátttöku sem flestra.
Akranes - Kynningarfundur um raunfærnimat
Akranes - Kynningarfundur um raunfærnimat
