Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi 60 kennslustunda grunnnámskeið Starfsfræðslunefndar fiskvinnslunnar fyrir fiskvinnslufólk til styttingar á námi í framhaldsskóla á móti allt að 5 einingum. Meta má námið á móti 5 einingum í vali, 5 einingum á kjörsviði og/eða til almennra greina eftir styrkleika viðkomandi einstaklings.
Markmið grunnnámskeiða fyrir fiskvinnslufólk er að auka þekkingu starfsmanna á vinnslu sjávarafla, efla sjálfstraust og styrkja faglega hæfni þess.
Þetta eru mjög gleðileg tíðindi og mikið baráttumál fiskvinnslufólks þar með í höfn. Formaður Matvælasviðs SGS hefur lengi barist fyrir þessari viðurkenningu.
Að sögn formanns Matvælasviðsins hefur Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar unnið vel að málinu og notið skilnings Menntamálaráðuneytisins.
