Fulltrúar SGS, þau Aðalsteinn, Anna, Vilhjálmur og Fjóla ræða við fulltrúa SA , þá Arnar og Jón Rúnar í KarphúsinuFormaður félagsins hefur haft í nógu að snúast í dag. Fyrir hádegi sat hann samningafund vegna sérkjarasamnings fyrir starfsmenn fiskimjölsverksmiðja. Eftir hádegið tók við fundur samninganefndar SGS við SA vegna almennu kjarasamninganna.
Á morgun verður fundað vegna sérmála fiskvinnslunnar og einnig verður farið yfir málefni er lítur að ræstingarkafla kjarasamningsins.
Ljóst er að kjaraviðræður eru komnar á fullt skrið og framundan er gríðarlegt annríki vegna þeirra.
