Ársfundur Alþýðusambands Íslands hefst í dag. Fulltrúar Verkalýðsfélags Akraness á ársfundinn eru Þórarinn Helgason, Jóna Adolfsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Bryndís Guðjónsdóttir, Jón Jónsson og Vilhjálmur Birgisson.
Yfirskrift fundarins er: byggjum réttlátt þjóðfélag þar sem áherslan verður á hag heimilanna, efnahags- og kjaramál og atvinnumál og samfélagslega ábyrgð. Auk þess er viðbúið að til umræðu á ársfundinum verði stöðugleikasáttmálinn, endurskoðun kjarasamninga og tillaga stjórnar og trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Akraness um breytingar á samningi um lífeyrismál.
Tillaga Verkalýðsfélags Akraness gengur út á það að miðstjórn Alþýðusambands Íslands verði falið að vinna að því að atvinnurekendur hverfi úr stjórnum lífeyrissjóða og að unnið verði að breytingum á reglugerðum sjóðanna með þeim hætti að sjóðsfélagar kjósi sér stjórnarmenn með beinni kosningu.
