Frá og með deginum í dag býður sjúkrasjóður Verkalýðsfélags Akraness félagsmönnum sínum 25% afslátt af kortum Íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar. Um er að ræða fjórar gerðir af kortum:
Árskort í þrek og sund:
- fullt verð: 25.000 kr. - með afslætti: 18.750 kr.
Árskort í sund:
- fullt verð: 15.000 kr. - með afslætti: 11.250 kr.
6 mán. kort í þrek og sund:
- fullt verð: 14.900 kr. - með afslætti: 11.175 kr.
3 mán. kort í þrek og sund:
- fullt verð: 9.900 kr. - með afslætti: 7.425 kr.
Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni var afkoma félagsins á síðasta ári afar glæsileg og má rekja þetta framtak sjúkrasjóðs til þeirrar niðurstöðu.
Kortin eru seld með afslætti á skrifstofu félagsins að Sunnubraut 13. Endilega hafið samband við skrifstofuna ef spurningar vakna.
