Kosning um verkfallsaðgerðir
Kæru félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness sem starfið hjá Norðuráli athugið.
Verkalýðsfélag Akraness hefur ákveðið að endurtaka kosningu um verkfall sem framkvæmd var í júlí og var samþykkt með 97% atkvæða þeirra sem greiddu atkvæði. Þessi ákvörðun er tekin vegna þess að Norðurál kaus að beita fyrir sér lagaklækjum sem byggist á því að þeir telja ykkur ekki hafa heimild til að fara í yfirvinnubann frá og með 1. september.
Þegar krafa frá lögmanni Norðuráls barst var ljóst að Verkalýðsfélag Akraness hefur ekki í hyggju að taka þátt í lagaklækjum fyrirtækisins sem hefur það markmið að tefja og torvelda þær takmörkuðu verkfallsheimildir sem starfsmenn Norðuráls hafa. Í ljósi þess ákvað félagið að aflýsa þeim vinnustöðvununum sem kosið var um í júlí til að forðast þessa lagaklæki.
Hins vegar hefur félagið ákveðið eins og áður sagði að endurtaka kosninguna og verður kosningin með rafrænum hætti, kosið verður um verkfall sem hefst á miðnætti 1. desember ef ekki semst fyrir þann tíma. Framkvæmd verkfallsins byggist á grein 8.11.2 í kjarasamningi félagsins við Norðurál.
Kosningin hefst á hádegi þriðjudaginn 25. ágúst og mun standa til klukkan 12 mánudaginn 31. ágúst. Hægt verður að kjósa með því að fara á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness www.vlfa.is og þar verður linkur á forsíðunni sem mun bera heitið „Kosning Norðurál“.
Félagsmenn smella á linkinn og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og þá er hægt að kjósa.
Stöndum saman! Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn!
Virðingarfyllst,
__________________________________________
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness
