Bæjarráð hefur haft samband við forsvarsmenn Laugfisks og óskað eftir að funda með þeim strax á mánudaginn. Eins og fram hefur komið hér á síðunni þá snýst málið um þá ákvörðun heilbrigðisnefndar Vesturlands að fyrirtækinu verði skylt að draga úr starfssemi sinni um 50% yfir sumarmánuðina. Ákvöðun þessi er byggð á kvörtunum sem hafa borist yfir lyktarmengun frá fyrirtækinu. Ætlar bæjarráð að heyra í forsvarsmönnum fyrirtækisins og fara yfir stöðuna eins og hún er í dag. Það er greinilegur vilji bæjarráðs að viðunandi lausn finnist á málefnum fyrirtækisins. Verkalýðsfélag Akraness er afar ánægt með þau hröðu viðbrögð sem bæjarráð Akraneskaupstaðar sýna í málefnum Laugafisks. Eins og fram hefur komið áður hér á síðunni þá starfa 35 manns hjá Laugafiski og laun og launatengd gjöld námu um 100 hundrað milljónum á síðast ári. Það fer því ekkert á milli máli hversu mikilvægt það er fyrir okkur Akurnesinga að starfsemi Laugafisks haldi áfram hér á Akranesi.
