Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum síðasta þriðjudag að skoða möguleika á að standa fyrir ráðstefnu á haustdögum um atvinnumál sjávarútvegsfyrirtækja og fyrirkomulag kvótamála í samvinnu við Samband sveitarfélaga. Það var afar ánægjulegt að sjá að tillagan var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn.
Það var Guðmundur Páll Jónsson bæjarfulltrúi sem lagði tillöguna fram. Í máli Guðmundar Páls kom fram að liðinn vetur sé búinn að vera okkur Akurnesingum sérstaklega erfiður varðandi þróun í fiskvinnslu- og útgerðamálum. Hann sagði einnig að almenning hér á Akranesi setti algjörlega hljóðan yfir þeirri þróun sem átt hefur sér stað í fiskvinnslumálum og átti hann við þann mikla samdrátt og uppsagnir sem átt hafa sér stað hjá HB Granda.
Í máli bæjarfulltrúans kom fram að ráðstefnuna verði að halda í samvinnu eða á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á þessari ráðstefnu vill bæjarfulltrúinn að farið verði yfir leikreglur sem gilda í íslenskum sjávarútvegi og í stjórnun fiskveiðistjórnunarkerfisins með tilliti til þess sem byggðirnar og samfélögin hafa þurft að mæta.
Guðmundur Páll vill einnig að menn spyrji á þessari ráðstefnu hvort þær leikreglur sem gilda í íslenskum sjávarútvegi í dag séu barns síns tíma. Hann vill einnig að menn spyrji sig þeirrar spurningar hvort leikreglunar þurfi ekki að vera með öðrum hætti en þær eru í dag. Hann vill að sveitarstjórnarstigið skoði á þessari ráðstefnu leikreglur fiskveiðistjórnunarkerfisins á hlutlausan og yfirvegaðan hátt með hagsmuni almennings sem í byggðunum býr og hafa búið að leiðarljósi.
Formaður félagsins fagnar því að bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hafi tekið frumkvæðið í því að halda slíka ráðstefnu því það er með öllu óþolandi hvernig það fiskveiðistjórnunarkerfi sem nú er við lýði hefur leikið þetta samfélag hér á Akranesi sem og aðrar byggðir þessa lands.
Það er full ástæða til að kalla eftir nýjum leikreglum í íslenskum sjávarútvegi í ljósi þess að fjölda byggðarlaga hefur nánast blætt út vegna þess kerfis sem hér hefur verið í hart nær 24 ár.
Hægt er að hlusta á tillögu og ræðu Guðmundar Páls Jónssonar með því að smella hér. Ræðan hans er þegar 1.09 er liðin á fundinn.
