Baráttan um að fá nýja sólarkísilflöguverksmiðju á Grundartanga sem Elkem Ísland er að berjast fyrir mun tapast endanlega ef nýr Orku-, umhverfis- og auðlindaskattur verður að veruleika. Þetta kom meðal annars fram í máli forstjóra Elkem Íslands, Einars Þorsteinssonar, á fundi með þingmönnum Norðvestur kjördæmis á föstudaginn var.
Elkem Ísland er í baráttu um að fá þessa verksmiðju hingað til lands við Kanada og eitt Asíuríki. Þessi nýja verksmiðja myndi skila 350 nýjum störfum, þar á meðal yrði töluvert af hátæknistörfum verksmiðjunni tengdri. Það kom einnig fram í máli Einars að ef þessi skattur verður að veruleika er verið að setja núverandi störf starfsmanna Elkem Ísland í umtalsverða hættu. Þessi nýi skattur mun þýða um tveggja milljarða aukaskatt á fyrirtækið en eins og fram hefur komið á heimasíðunni hefur fyrirtækið aldrei skilað slíkum hagnaði frá stofnun þess.
Það kom að lokum fram í máli Einars að fyrirtækið hefur fjárfest hér á landi á undanförnum misserum fyrir um 8 milljarða króna og nýverið var tekin ákvörðun um að ráðast í gagngerar endurbætur á ofni 3 sem er stærsti ofninn. Hann tjáði einnig á fundinum að ef þessi fyrirhugaði skattur hefði verið til staðar þegar ákvörðun um viðhald á ofni 3 var tekin hefðu eigendur fyrirtækisins að öllum líkindum tekið ákvörðun um að slökkva á ofninum sem hefði þýtt að rúmlega 30 manns hefðu hugsanlega misst atvinnu sína.
Þessi vanhugsaði skattur er formanni Verkalýðsfélags Akraness óskiljanlegur í ljósi þess að verið er að setja rekstrargrundvöll stóriðjufyrirtækja í stórhættu og þar af leiðandi störf starfsmannanna líka. Það er mat formanns að hér sé Ríkisstjórn Íslands að kasta meiri hagsmunum fyrir minni.
