Verkalýðsfélag Akraness bíður nú eftir tilboði sem forsvarsmenn Fangs ætla að leggja fram vegna nýs kjarasamnings. Þeir sem starfa hjá Fangi eru starfsmenn sem sjá um ræstingu fyrir Norðurál og Íslenska járnblendifélagið. Einnig sjá starfsmenn Fangs um mötuneytið hjá Íslenska járnblendifélaginu. Krafa starfsmanna er skýr þ.e sambærilegur samningur og verið var að ganga frá fyrir starfsmenn Klafa fyrir örfáum dögum.
Beðið eftir tilboði frá forsvarsmönnum Fangs vegna nýs kjarasamnings !
Beðið eftir tilboði frá forsvarsmönnum Fangs vegna nýs kjarasamnings !
