Á aðalfundi félagsins í maí sl. voru breytingar gerðar á eftirfarandi styrkjum og tóku gildi 31. maí 2025.
- Glasa- og tæknifrjóvgun, ættleiðing: styrkur hækkaður úr 100.000 kr. í 200.000 kr.
- Heilsuefling: ekki er lengur hægt að nota styrkinn vegna kaupa á skóm, fatnaði, búnaði eða aðgangslyklum.
Breyting á heilsueflingarstyrk er gerð í samræmi við lög og reglur um tekjuskatt nr. 90/2003. Styrkurinn er áfram að hámarki 55.000 kr. á hverjum 12 mánuðum (50% af reikningi) og hægt að nota hann vegna kaupa á kortum á líkamsræktarstöðvum og sundstöðum, hjá íþróttafélögum, vegna æfinga/þjálfunar hjá þjálfara og annarri skipulagðri hreyfingu.
Félagið hvetur félagsmenn til að kynna sér þá styrki sem veittir eru á hverjum tíma og hvað þeir fela í sér.
Upplýsingar um styrki eru aðgengilegir á heimasíðu félagsins, www.vlfa.is - sjúkrasjóður
Þeir styrkir sem félagið veitir eru;
- Fæðingarstyrkur
- Meðferð sjúkraþjálfara, sjúkranuddara, kírópraktors
- Styrkur vegna glasa- og tæknifrjóvgunar og ættleiðingar
- Styrkur vegna heilsufarsskoðunar, undir það fellur m.a. tannlæknakostnaður
- Styrkur vegna gleraugna og linsukaupa
- Styrkur vegna heyrnartækjakaupa
- Heilsueflingarstyrkur
- Viðtalsmeðferð hjá sálfræðingi, fjölskylduráðgjafa og ADHD greining hjá sálfræðingi
- Styrkur vegna göngugreiningar og innleggja
