Nú höfum við opnað fyrir umsóknir í sumarúthlutun orlofshúsa félagsins. Umsóknartímabilið er alveg extra langt eða frá 1.-31. mars og úthlutun fer fram þann 4. apríl.
Félagið er með bústaði í Húsafelli, við Hótel Gym, í Svínadal, Kambshólslandi, Kjósinni, Ölfusborgum, Hraunborgum, Vestmannaeyjum, Akureyri og einnig erum við með eina íbúð á Torrevieja svæðinu á Spáni. Alls 14 orlofs-hús/íbúðir.
Úthlutun fer þannig fram að allar umsóknir eru skráðar inn í tölvukerfi félagsins. Kerfið raðar öllum umsóknum í röð eftir punktastöðu, þ.e. þeir umsækjendur sem flesta hafa punktana eru fremstir í röðinni og svo koll af kolli. Ef punktar tveggja eru jafnir fær sá eldri úthlutað. Kerfið vinnur sig síðan í gegnum umsóknirnar og úthlutar vikum eftir punktastöðu.
Þeir sem ekki fá úthlutað í fyrri úthlutun lenda sjálfkrafa í endurúthlutun þar sem þeim vikum er úthlutað sem ekki voru greiddar á eindaga fyrri úthlutunar. Fyrir endurúthlutun er heimilt að breyta umsóknum og leggja inn nýjar. Eftir eindaga endurúthlutunar verða lausar vikur auglýstar hér á heimasíðunni og hægt verður að bóka þær á Félagavefnum og á skrifstofu félagsins. Gildir þá hin ágæta regla: Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Hér eru helstu dagssetningarnar varðandi umsóknir og úthlutanir:
31. mars - Frestur til að skila inn umsóknum um orlofshús
04.apríl - Fyrri úthlutun fer fram, allir umsækjendur fá svarbréf í pósti (einnig er hægt að sjá strax hvort bókun hafi myndast inni á Félagavefnum)
12. apríl - Eindagi fyrri úthlutunar, þeim vikum sem ekki eru greiddar á eindaga er úthlutað aftur
13.apríl - Endurúthlutun fer fram, þeir sem fá úthlutað fá það staðfest með bréfi
- Kl. 12:00 - Fyrstir koma, fyrstir fá! Þeir sem fyrstir koma geta bókað lausar vikur, líka á Félagavefnum (athugið að eftir eindaga endurúthlutunar getur lausum vikum fjölgað)
25.apríl - Eindagi endurúthlutunar, ógreiddar vikur verða lausar til bókunar á Félagavefnum.
Hér er svo hægt að nálgast bækling og umsóknareyðublöð fyrir þá sem ekki vilja nýta sér rafrænar umsóknir.
Einnig liggur þetta frammi á skrifstofunni hjá okkur á Þjóðbraut 1.
