Það er óhætt að segja að það sé líf og fjör bæði hvað varðar veiðar og vinnslu tengdum hvalveiðum. En í morgun var búið að veiða 83 Langreyðar af þeim 150 sem reglugerðin heimilar.
Það þarf ekkert að fara í grafgötur með það að hvalveiðarnar hafa haft gríðarlega jákvæð áhrif á atvinnulífið hér á Akranesi. Hvalveiðarnar eru að skapa rúmlega eitt hundrað störf og munar um minna í því árferði sem nú ríkir í íslensku atvinnulífi.
Samkvæmt upplýsingum sem formaður hefur aflað sér er áætlað að vinna við vinnslu hvalaafurða standi í það minnsta til loka september.
