Fyrsta loðnan sem landað hefur verið hér á Akranesi á þessari loðnuvertíð barst í gærkveldi, en þá landaði Faxi RE um 1.100 tonnum. Samkvæmt upplýsingum sem formaður félagsins aflaði sér þá er búið að manna á vaktir í síldarbræðslunni og er reiknað með að bræðsla hefjist í kvöld.
Það er mikið fagnaðarefni að sjá að tannhjól síldarbræðslunnar séu byrjuð að snúast aftur eftir gríðarlegan samdrátt á liðnu ári, en nú er liðið rúmt ár síðan bræðsla átti sér stað síðast í verksmiðjunni. Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá var flest öllum starfsmönnum verksmiðjunnar sagt upp störfum í janúar í fyrra vegna samdráttar á uppsjáfarafla. Hins vegar hefur einhver hluti af þeim starfsmönnum sem sagt var upp störfum í fyrra verið endurráðnir, því ber að fagna.
