Í gær voru haldnir tveir fundir með starfsmönnum Elkem Ísland. Sá fyrri hófst kl. 13 og sá síðari kl. 19 en á þessum fundum var kallað eftir hugmyndum starfsmanna að mótun kröfugerðar vegna komandi kjarasamninga Elkem Ísland. Samningurinn mun renna út í lok nóvember. Á fundinum fór formaður yfir hvernig til hefði tekist í síðasta samningi og kom fram í máli hans að laun byrjenda væru í dag tæpum 60.000 kr. hærri á mánuði heldur en fyrir síðustu samninga. Hjá starfsmanni eftir 10 ára starf hefðu launin hækkað um tæpar 75.000 kr. Þessu til viðbótar samdi félagið um verulega eingreiðslu á samningstímanum og nam sú eingreiðsla 450.000 kr. á hvern starfsmann. Sem betur fer varð kaupmáttaraukning hjá starfsmönnum Elkem Ísland sem nam rétt rúmum 8% að teknu tilliti til eingreiðslunnar á samningstímanum.
Það er ljóst að töluverður hugur er í starfsmönnum Elkem vegna komandi kjarasamninga vegna þeirrar staðreyndar að álögur á launafólk gera vart annað en að hækka miskunnarlaust og eina tækifærið sem launafólk hefur til að bæta sinn hag er þegar kjarasamningar eru lausir. Það er ljóst að launafólk á hinum almenna vinnumarkaði nýtur ekki þessa launaskriðs sem viðgengst oft á tíðum því fastlaunasamningar sem gerðir eru kveða einungis á um fastar launahækkanir á samningstímanum og þar af leiðandi skilar það sér ekki í mældu launaskriði.
Það liggur fyrir að Elkem Ísland er útflutningsfyrirtæki og á þeirri forsendu telja menn að svigrúm eigi að vera til staðar í komandi samningum. Menn voru flestir sammála um að gerður verði skammtímasamningur til 12 mánaða þó vissulega hafi heyrst raddir á fundinum sem óskuðu lengri samningstíma. Mótun kröfugerðar mun nú fara fram af fullum þunga enda munu viðræður um nýjan kjarasamning hefjast von bráðar.
