Krafa dagsins 1. maí 2005, „Einn réttur – ekkert svindl” vísar til sérstaks átaks sem Alþýðusambandið og aðildarsamtök þess hrinda af stað á morgun, 2. maí.
Markmið átaksins er:
- Að verja kjör og réttindi á íslenskum vinnumarkaði bæði fyrir Íslendinga og útlendinga sem hér starfa.
- Að koma í veg fyrir félagsleg undirboð á vinnumarkaði með erlendu vinnuafli í ólöglegri atvinnustarfsemi.
- Að tryggja eðlilega samkeppnisstöðu fyrirtækja sem virða kjarasamninga og viðmið sem gilda á íslenskum vinnumarkaði.
- Að tryggja að atvinnustarfsemi greiði sinn skerf til samfélagsins og reksturs þess.
Átakið mun beinast gegn hvers konar ólöglegri starfsemi á vinnumarkaði. Það mun beinast gegn fyrirtækjum sem misnota erlent vinnuafl og stunda undirboð til að skapa sér samkeppnisforskot á markaði. Það mun hins vegar ekki beinast gegn erlendu launafólki sem komið hefur til starfa góðri trú um að allt væri í lagi og það sjálft því í fullum rétti.
