Eins og fram hefur komið í fréttum er Verkalýðsfélag Akraness ásamt öðrum aðildarfélögum innan ASÍ í átaki gegn verðhækkunum og var almenningur hvattur til að vera á varðbergi undir kjörorðinu Vertu á verði. Þessari áskorun tók maður að nafni Reynir Ásgeirsson í Kópavogi svo sannarlega enda hefur hann gert ítarlega verðkönnun og kannað verð á rúmlega 170 vöruflokkum í 7 verslunum. Verkalýðsfélag Akraness vill taka það fram að þessi könnun er alfarið á ábyrgð þess sem hana framkvæmdi en er frábært innlegg í þá baráttu að benda almenningi á hvar hagkvæmast er að framkvæma sín matarinnkaup. Hægt er að skoða þessa viðamiklu verðkönnun hér.
Hægt er að hafa samband við Reyni Ásgeirsson sem framkvæmdi þessa viðamiklu könnun í síma 8638826 eða á netfanginu
