Undanfarna daga hafa iðnaðarmenn verið að störfum í sumarbústað félagsins í Húsafelli. Unnið hefur verið að því að skipta um eldhúsinnréttingu og endurnýja tæki auk ýmiss viðhalds. Endurbættur bústaður verður klár til útleigu í lok vikunnar.
Það er Trésmiðjan Akur sem tók að sér verkið, en þar er um að ræða rótgróið fyrirtæki hér á Akranesi þar sem starfa á þriðja tug félagsmanna VLFA.
Viðhald orlofshúsa er eitt af hlutverkum Orlofssjóðs Verkalýðsfélags Akraness sem á og rekur fjóra sumarbústaði svo og þrjár íbúðir á Akureyri.
