Endurúthlutun er nú lokið, og er nú hægt að bóka sér viku af þeim sem eftir eru, annað hvort á Félagavefnum eða á skrifstofu félagsins. Lausar vikur eru flestar í byrjun júní og í lok ágúst, ekkert er laust í júlí. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Í endurúthlutuninni í morgun urðu til 40 nýjar bókanir á félagsmenn sem ekki fengu úthlutað í fyrri úthlutun. Þeir sjá núna bókun inni á Félagavefnum (undir Orlofshús og Bókunarsaga) og geta greitt bókunina þar eða á skrifstofu félagsins. Eindagi er 13. maí.
Þann 14. maí verða ógreiddar bókanir felldar niður og geta þá aðrir félagsmenn bókað þær sýnist þeim svo.
