Endurúthlutun orlofshúsa er nú lokið. Af þeim 53 vikum sem lausar voru eftir fyrri úthlutun, gengu 33 vikur út í endurúthlutun. Sömu úthlutunarreglur gilda í báðum úthlutunum, ef fleiri en einn sækja um sömu vikuna fær sá úthlutað sem á fleiri punkta.
Það eru því 20 vikur eftir í pottinum og um þær gildir hér eftir reglan: Fyrstur kemur, fyrstur fær. Eindagi endurúthlutunar er 15. maí. Eftir þann tíma verða ógreiddar bókanir felldar niður og bætast í pottinn.
Hægt er að bóka lausar vikur á skrifstofu félagsins og á FÉLAGAVEFNUM.
