Nú er endurúthlutun vegna sumarsins 2007 lokið. Allir þeir sem ekki fengu úthlutað í fyrri úthlutun áttu umsókn í endurúthlutun auk þeirra sem lagt hafa inn umsókn á skrifstofu félagsins á undanförnum dögum. Þeir sem fengu úthlutað í endurúthlutuninni hafa nú fengið sent bréf þar sem þeim er tilkynnt um það hvaða viku þeir fengu og hvernig á að ganga frá greiðslu.
Eindagi endurúthlutunar er 16. maí og eftir það verður hægt að bóka ógreiddar vikur.
Á skrifstofu félagsins er verið að ganga frá lista yfir þær vikur sem ekki var úthlutað og verður hann auglýstur hér á heimasíðunni á mánudagsmorgun 14. maí. Frá þeim tíma geta félagsmenn haft samband við skrifstofu og bókað lausar vikur af listanum. Gildir þá hin ágæta regla: Fyrstur kemur, fyrstur fær.
