Forsendunefnd ASÍ og SA komust að samkomulagi í dag sem þýðir að ekki mun koma til uppsagnar á kjarasamningum um áramót. Enn Verkalýðsfélag Akraness spyr sig hvaða leiðréttingu fengu þeir verkamenn sem taka laun eftir kjarasamningi á hinum almenn vinnumarkaði sem undirritaður var 7. mars 2004. ? Jú eingreiðslu uppá 26.000 þúsund krónur og 0,65% launahækkun sem tekur gildi árið 2007, það er jú allt og sumt. Hverjar voru samningsforsendur kjarasamningsins frá 7. mars 2004
1. Að verðlag þróist í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
2. Að sú launastefna og þær kostnaðarhækkanir sem í samningum felast verði almennt stefnumarkandi fyrir aðra samningagerð á vinnumarkaðnum.
Kostnaðaráhrif kjarasamningsins sem gerður var fyrir almenna markaðinn 7. mars 2004 var 15,8% á samningstímanum. Allir aðrir hópar sem komu á eftir almenna markaðnum fengu mun meira. Tökum dæmi kennarar sömdu um 30%. Sveitafélagasamningurinn gaf um 22%, kjarasamningurinn við fjármálaráðherra fh ríkisjóðs gaf einnig um 25%. Allir stóriðjusamningarnir gáfu yfir 20% á samningstímanum Norðurál 24,5% Íslenska járnblendið 21% Ísal 21%. Með öðrum orðum þá sömdu allar aðrar starfsstéttir um mikið meira heldur enn 15.8% Engar fréttar hafa borist af því að forsendunefndin hafi tekið þennan lið samningsforsenda til endurskoðunar. Því verður ekki trúað að nefndin hafi ekki gert mat á þessum þætti samningsforsendana með það að markmiði að leiðrétta þann launamun sem orðið hefur. Verkafólk sem tekur sín laun eftir kjarasamningi á hinum almenna markaði hefur klárlega setið eftir.
Verkalýðsfélag Akraness taldi sig ekki fært að undirrita kjarasamninginn sem Starfsgreinasamband Íslands gerði við Samtök atvinnulífsins á sínum tíma vegna þess hversu rýr hann var og nú virðist ljóst að síðara endurskoðunarákvæðið er ekki skila leiðréttingu á milli samninga.
