Í dag er síðasti dagur fyrir þá sem fengu orlofshús í endurúthlutun til að greiða leiguna. Hægt er að greiða leiguna með korti inni á Félagavefnum, millifæra á reikning sem uppgefinn var í úthlutunarbréfi eða koma á skrifstofuna á Sunnubraut og ganga frá leigunni þar.
U.þ.b. 20 vikur eru ennþá ógreiddar og í fyrramálið verða þær vikur sem ekki verða greiddar í dag losaðar og geta félagsmenn þá bókað þær vikur.
