Í gær samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir að áfengisgjald og tóbaksgjald hækki um 15%, bifreiðagjald hækki um 10%, olíugjald um 5 krónur og almennt vörugjald á bensín um 10 krónur. Þessir nýju veltuskattar eiga að skila ríkissjóði tæpum fimm milljörðum króna á ári. Hins gerir þetta það að verkum að vegna verðtryggingarinnar þá aukast skuldir heimilanna um allt að 8 milljarða króna.
Er þetta árangurinn af þeim viðræðum sem forseti Alþýðusambands Íslands og forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa átt við stjórnvöld að undanförnu varðandi stöðugleika í íslensku samfélagi?
Það er alveg morgunljóst að það gengur ekki upp að ríki, sveitarfélög, verlslunareigendur, tryggingafélög og aðrir þjónustuaðilar varpi sínum vanda út í verðlagið á meðan launþegar þurfa ekki aðeins að taka við gríðarlegri aukningu á greiðslubyrði heldur einnig að sæta skerðingum á sínum launakjörum. Vart getur þetta verið stöðugleikinn sem menn eru að vinna að.
Krafan er skýr, þær launahækkanir sem frestað var í febrúar sl. taki strax gildi 1. júlí nk. Annað kemur ekki til greina af hálfu margra verkalýðsfélaga.
