Formaður félagsins hefur haft samband við fulltrúa Vinnueftirlitsins á Vesturlandi og óskað eftir því að Vinnueftirlitið kanni hvaða áhrif hinn nýi öryggisfatnaður hefur á líðan starfsmanna Íslenska járnblendifélagsins.
Eins og fram hefur komið þá telja fjölmargir starfsmenn Íj að við viss skilyrði og þá sérstaklega þegar heitt er í veðri geti hinn nýi fatnaður jafnvel ógnað öryggi þeirra.
Fulltrúi Vinnueftirlitsins tók vel í ósk félagsins og ætlar í framhaldinu að kanna hvernig hægt sé að standa að slíkri úttekt.
Eins og formaður hefur áður sagt þá er afar brýnt að þeir aðilar sem koma að þessu máli hlusti á þau alvarlegu varnaðarorð sem starfsmenn hafa bent á er varða þennan nýja fatnað.
