Félagsmenn kunna vel að meta framtalsaðstoð félagsins

Félagsmenn kunna vel að meta framtalsaðstoð félagsins

Framtalsaðstoðin vegna skattaframtals stendur nú yfir á skrifstofu félagsins og eru einungis tveir lausir tímar eftir.

Hugsanlega verður einhverjum tímum bætt við en það liggur ekki alveg fyrir.  Það er Hugrún Olga Guðjónsdóttir sem sér um þessa þjónustu fyrir félagið og gerir það með miklum sóma.

Það er greinilegt að félagsmenn kunna vel að meta þessa þjónustu sé tekið mið af þeirri aukningu sem er á milli ára. 

Þeir félagsmenn sem eru að velta fyrir sér að nýta sér þessa þjónustu félagsins eru eindregið hvattir til að panta sér tíma, því hver er að verða síðastur í þeim efnum. 

Fleiri fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.