Stjórn félagsins vill minna félagsmenn sem taka laun eftir kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins við Starfsgreinasamband Íslands á kynningarfundinn annað kvöld kl. 20:00 í sal HB Granda.
Félagsmönnum mun gefast kostur á að kjósa um samninginn að lokinni kynningu á honum.
Í morgun kynnti formaður samninginn fyrir starfsmönnum lifrarbræðslu Jóns Þorsteinssonar og á morgun er fyrirhugaður kynningarfundur með starfsmönnum Smellinn. Á miðvikudaginn verður síðan kynningarfundur með starfsmönnum Norðanfisks.
Á þeim kynningum sem formaður hefur haldið hefur komið fram nokkur ánægja með nýgerðan samning þótt vissulega séu alltaf atriði sem betur hefðu mátt fara í nýjum samningi að mati fundarmanna. En heilt yfir virðast félagsmenn vera nokkuð ánægðir með nýgerðan samning.
