Stóriðjudeild Verkalýðsfélags Akraness heldur opinn fræðslufund fyrir félagsmenn sína mánudaginn 4. desember að Kirkjubraut 40, 3. hæð kl: 20:00.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Magnús M. Norðdahl deildarstjóri lögfræðideildar Alþýðusambands Íslands mun vera með fyrirlestur um eftirfarandi þætti:
- Vinnustöðvanir
- Forgangsréttarákvæði kjarasamninga
- Launamaður eða verktaki
- Veikindaréttur, slys og skaðabætur
Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Boðið verður uppá kaffiveitingar.
Stjórn Stóriðjudeildar
