Félagsskírteini VLFA veitir félagsmönnum þess ýmis sérkjör og afslætti eins og sjá má hér á heimasíðunni. Meðal þeira sérkjara sem félagsmönnum bjóðast eru kaup á ársmiðum sem gilda á alla heimaleiki Skagamanna í fyrstu deildinni í sumar. Hægt er að velja um þrennskonar ársmiða - Brons, Silfur og Gull. Ársmiðarnir gilda allir á alla heimaleiki en misjafnt er hvað er innifalið þess utan. Innifalinn í öllum ársmiðunum er stuðningsmannafundur með þjálfara liðsins, leikmönnum og stjórn. Þegar komið er yfir í Silfurmiðann bætist til dæmis við kaffi og meðlæti í öllum hálfleikjum en með Gullmiðanum fylgir einnig aðgangur að VIP fundum fyrir leiki þar sem þjálfari liðsins fer yfir leikinn og tölfræðina og núverandi og fyrrverandi leikmenn mæta á svæðið.
Félagsmenn VLFA geta fengið afslátt af ársmiðunum gegn framvísun félagsskírteinis og eru miðarnir til sölu á skrifstofu KFÍA sem og í gegnum netfangið
Afsláttur fyrir félagsmenn er sem hér segir:
|
Brons |
Silfur |
Gull |
Pepsideild kvenna |
|
|
Félagsmenn VLFA |
9.000 |
16.000 |
30.000 |
5.000 |
|
Almennt verð |
11.000 |
20.000 |
40.000 |
7.000 |
VLFA hvetur félagsmenn sína til að mæta á völlinn í sumar og styðja við bakið á Skagamönnum.
