Þessa stundina ættu allflestir félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness að vera búnir að fá senda heim til sín dagbók. Í dagbókinni eru hinar ýmsu upplýsingar er lúta að starfsemi félagsins og einnig eru upplýsingar um hin ýmsu réttindamál sem tengjast okkar félagsmönnum. Dagbókin gildir einnig sem félagsskírteini.
