Félagsmönnum Verkalýðsfélags Akraness hefur fjölgað gríðarlega frá áramótum, en þá voru félagsmenn VLFA 2.117. Í dag eru þeir rétt tæplega 2.500 og hefur þeim fjölgað um rétt tæpa 400 félagsmenn eða sem nemur 18%.
Af þessum 2.500 félagsmönnum koma 300 erlendis frá, langflestir frá Austur - Evrópu.
Sú jákvæða uppbygging sem orðið hefur á Grundartangasvæðinu á undanförnum misserum skýrir að mestu þessa miklu fjölgun.
Það er óhætt að segja að framtíð Verkalýðsfélags Akraness sé nokkuð björt sé tekið tillit til þeirra fjölgunar sem orðið hefur í félaginu á undanförnum mánuðum og þess góða atvinnuástands sem ríkir á félagssvæði VLFA um þessar mundir.
Það mun styrkja stoðir atvinnlífsins hér á Akranesi enn frekar ef áætlanir forsvarsmanna HB-Granda ganga eftir um að flytja alla landvinnsluna frá Reykjavík hingað upp á Akranes eins og þeir hafa nú þegar tilkynnt um.
Í dag er verið að byggja 295 nýjar íbúðir hér á Akranesi og sýnir það hversu gríðarlegur uppgangur er hér á Akranesi um þessar mundir og það góða atvinnuástand sem hér ríkir.
Í dag búa 6.169 íbúar á Akranesi og hafa þeir aldrei verið fleiri, ástæðan fyrir þessari miklu fjölgun er eins og áður sagði gott atvinnuástand og ekki síður það góða samfélag sem hér ríkir.
