Á skrifstofu félagsins stendur nú sem hæst undirbúningur fyrir dagsferð eldri félagsmanna, en árlega býður félagið félagsmönnum sínum 70 ára og eldri ásamt mökum í slíka ferð. Þessi ferð hefur verið afskaplega vinsæl og venjulega taka yfir 100 manns þátt í henni. Síðustu ár hefur t.a.m. verið farið um Reykjanesið, Snæfellsnes, Suðurlandið og í fyrra var farið til Vestmannaeyja.
Verið er að leggja lokahönd á dagskrána, en í ár er dagsferðin fyrirhuguð föstudaginn 9. september og er ferðinni heitið til Reykjavíkur undir dyggri leiðsögn Björns Finsen. Áð verður á ýmsum stöðum og boðið upp á hádegisverð og síðdegishressingu.
Í næstu viku fá félagsmenn VLFA 70 ára og eldri sent boðsbréf þar sem nánari upplýsingar um ferðatilhögun og skráningu koma fram.
