Á föstudaginn var úskrifuðust 6 starfsmenn HB Granda sem sérhæfðir fiskvinnslumenn en námskeið stóð yfir síðustu vikuna í desember. Námskeiðið veitir 3% launahækkun fyrir þá sem útskrifast sem sérhæfðir fiskvinnslumenn.
Formaður félagsins var einn af leiðbeinendum námskeiðsins. Sá hann um að fara yfir réttindi og skyldur á vinnumarkaðnum og einnig kynnti hann fyrir þeim sem sátu námskeiðið hvaða þjónustu félagið er að veita sínum félagsmönnum.
