Það er afar ánægjulegt að geta sagt frá því að fjórir af þeim sex félagsmönnum Verkalýðsfélags Akraness sem misstu vinnu við gjaldþrot Geca hf. hafa fengið nýja vinnu eða vilyrði um nýtt starf.
Verkalýðsfélags Akraness hefur verið sínum félagsmönnum innan handar við að fylla út atvinnuumsóknir og fleira í þeim dúr. Vonandi greiðist úr málum hina tveggja sem ekki hafa fengið vinnu mjög fljótlega.
Að lenda í því að missa atvinnuna við þessar aðstæður og það í sjálfum jólamánuðunum er afar erfitt og skilja bara þeir sem í því lenda. Því er afar mikilvægt að stéttarfélögin reyni eins og kostur er að koma félagsmönnum sínum til hjálpar eins og hægt er.
