Formaður félagsins fór og heimsótti nokkur fyrirtæki í dag í þeim tilgangi að heyra hvað brennur á félagsmönnum þessa daganna.
Einnig eru þessar vinnustaðaheimsóknir hugsaðar til þessa að fá tillögur frá félagsmönnum hvað megi bæta í þjónustu félagsins.
Það er afar ánægjulegt fyrir stjórn og starfsmenn félagsins að þeir félagsmenn sem formaður ræddi við í dag eru nokkuð ánægðir með þá þjónustu sem félagið er að veita í dag.
Stjórn félagsins leggur mikla áherslu á að vera í nánu og góðu sambandi við sína félagsmenn og eru þessar heimsóknir einn liður í því.
Stjórn félagsins er einnig alltaf að leita leiða til að auka þjónustuna enn frekar og ef þið félagsmenn eruð með einhverjar snjallar hugmyndir í þá veru endilega hafið samband við skrifstofu félagsins.
